Aðstaða og Dagskrá ættarmóts

Góð aðstaða er á staðnum, ef svo ólíklega vildi til að það yrði ekki gott veður.Félagsheimilið var byggt fyrir 5 árum.Nægt pláss er fyrir alla innandyra, fínt eldhús, iðnaðaruppvöskunarvél, kaffivél, og borðbúnaður,

Búið að redda skjávarpa, hljóðkerfi og öðru svo nútímalegt ættatmót geti hafist.

Dagskrá.

Föstudagur
Tekið á móti ættingjum með brosi á vör og það boðið velkomið í Fljótshlíðina.

Humarsúpa í boði Gríms Kokks frá kl 7 - 9


Eftir það semjið þið sjálf dagskrána að eigin vilja,
og hafið hana eins langa og þið viljið, og þolið ;)
Sparið bara kraftana fyrir laugardaginnn.



Laugardagur


kl. 2:00

Allir koma saman við kirkjuna á Hvolsvelli,
Þar verður afhjúpaður Legsteinn sem að grafarsytkinin
gáfu ömmu sinni,Jóhönnu Jónsdóttur.og fjölsk,
Brósi mun segja nokkur minningarorð um ömmu sína sem hann ólst að stórum hluta upp hjá.

kl. 3- 4


Að því loknu halda allir að Goðalandi, þar sem að fólk sest að kaffihlaðborði sem við öll sjáum um.

(Hugmyndin er að allir komi með eitthvað smávegis,köku ? kleinur? Brauðtertu? ....svo
úr verði kaffhlaðborð fyrir alla fjölsk. í samkomusalnum á Goðalandi, þá verður þetta
líkt og þegar stórfjölsk. kom saman hjá Kötu ömmu að Hásteinsvegi 45.)

frá 4 - 6 helgum við börnunum.


Útileikir sem að allir taka þátt í og lýsi ég eftir sjálfboðaliðum til að sjá um þann þátt.

Á meðan litlu og stóru börnin leika sér, þær/þeir sem ekki taka þátt koma  nokkrir að
"dekka" upp salinn.
Dúklagt,borðbúnaður,skreytt og kerti. (dúkar og annað verður á staðnum)

kl. 7

Glæsilegur kvöldverður að hætti kokkana Gríms, Sigga,og Gísla Auðunns

Allir afkomendur Kötu Sig setjast að borðhaldi.

Að því loknu,hjálpast allir við að ganga frá.
Kata Gísla segir nokkur orð og frumsýnir 3d barnamynd sem að tileinkuð er Leynifélaginu Gullborg.
(Sem að öll börn Grafarættarinnar geta gengið í þegar þau eru orðin 5 ára og ekki eldri en 12 ára )

Skemmmtidagskrá er þannig að hver leggur kemur með eitt atriði.

Eftir það semjum við okkar eigin dagskrá og höfum hana gleðilega fyrir alla.

Kærar kveðjur

Hlakka til að sjá ykkur öll

Kata Gísla


Frábær mæting ! Stolt af ykkur.

Mikið er ég ánægð að sjá hversu margir ætla að koma af ættinni :) 100% mæting hjá nokkrum fjölskyldum.

Kærar kveðjur

Kata Gísla


Sameiginlegur kvöldverður og leiga aðstöðu

Eins og sagt var hér þegar í upphafi stofnunar aldarminninga síðunnar þá munum við  hafa öll tjaldstæðin, og samkomuhúsið á leigu fyrir okkur.
Verð  er kr. 850,- á sólarhring.Ekki þarf að greiða fyrir börn undir 12 ára.Fólk getur því komið með tjöldin sín, fellihýsi eða hjólhýsi. Vinsamlegast ath. þó að fólk gisti ekki á tjaldstæðinu þá þarf að greiða leigu fyrir húsið og aðstöðuna þar, sem við munum öll njóta. Tengiliðir hvers leggs sjá um rukkun fyrir sína fjölsk.

Sameiginlegur kvöldverður á laugardag 30.maí ætlar Grímur að hafa á kostnaðverði fyrir okkur. Verð á mann er kr. 2000,- Frítt er fyrir börn undir 12 ára. Til að halda öllum verðum niðri verður ekkert þjónustufólk. Því verða allir að taka höndum saman í bæði þjónustu í kringum mat og þrifum.
Við erum nú þekkt fyrir dugnað Grafarfólkið svo okkur verður ekki skotaskuld úr því ;)

Kvöldvaka

Gaman væri að hver leggur kæmi með eitt skemmtiatriði á kvöldvöku, getur verið hvað sem er...
Fjöldasöngur- Samkvæmisleikir - söng-eða leikatriði, eða hvaðeina sem ykkur settur í hug 

( Þegar eru komin 3 atriði )

Hlakka mikið til að sjá ykkur öll !

Með bestu kveðju

Kata Gísla

 


Föstudagskvöld 29. maí..... byrjum á góðum mat til að bjóða fólk velkomið

humarsupa2.jpg Eigendur fyrirtækisins  Grímur kokkur, ætla að bjóða okkur upp á girnilega humarsúpu á föstudagskvöldið, svona til að koma okkur vel inn í næsta dag. Hlakka til að sjá sem flesta, af afkomendum Kötu og Binna.

Skráning á Aldarafmælið

Vegna sameiginlegs kvöldverðar og annars undirbúnings er nauðsynlegt að allir skrái sig hjá sínum legg fyrir 15. maí n.k. Tengiliðir hvers leggs skila síðan tölum til Kötu Gísla, (  e-mail: hugarflug@gmail.com ) Aðeins þarf að tilgreina hversu margir fullorðnir eru, og hversu mörg börn eru undir 12 ára aldri. Tengiliðir fyrir hvern legg fyrir sig eru eftirfarandi, eftir aldursröð systkina:

Kata Færseth Jóna: Kata Færseth

 

 

 

kg p Bobba: Kata Gislad.

 

 

 

njola p Odda:  Njóla Jónsd.

 

 

 

ragna p Frissi: Ragna Jenný Friðriksd.

 

 

 

ella k Binni: Elísabet Katrín Benónýsd.

 

 

 

viktor p Brósi: Viktor Davíð Sigurðss.

 

 

 

helga k p Svana : Helga Katrín Emilsd.

 

 

 

bestu kveðjur

Kata Gísla

 

 


Saga af sjóferð systranna

Emil Páll Jónsson  var svo vinsamlegur að senda okkur fullt af gömlum myndum,að minni beiðni.   Ég er þegar búin að setja þær inn í viðeigandi albúm.Bestu þakkir Emil.

Hann lét þessa sögu fylgja með

Þrjár systur Svana, Odda og Bobba Þannig var að einu sinni eftir að Odda hafði verið á sjúkrahúsi, fékk hún að fara heim áður en hún lagðist inn banaleguna. Meðan hún var heima komu þær Odda og Bobba til Keflavíkur. Við áttum þá, ég, Halldór og Gummi pabbi hans spíttbát saman. Var ákveðið að fara í sjóferð og varð Odda svo ánægð að er hún lá banaleguna fór hún fram á að ég og Svana tækjum þátt í að vera yfir henni á sjúkrahúsinu. Einu sinni þegar hún var búin að vera í móki lengi og raunar fáum klukkutímum áður en hún skildi við var eins og hún vaknaði og sagði:  Emmi mannstu hvað var gaman á bátnum ? Síðan þakkaði hún fyrir þá stund og lagðist aftur í mók

Innilegar hamingjuóskir ! Fermingar sem mér er kunnugt um í ættinni.

K?ri Ben?n?sson Kári Benónýsson (Oddu leggur) fermdur, þarna á mynd með afa sínum Jóni Þórðarsyni.Kári er sonur Binna Jóns og Siggu Viðars. Hann fermdist 5. apríl.

 

 

Karen Rut Gísladóttir ( Bobbu leggur) fermdist sama dag, 5.april, Dóttir Gísla M. Gíslasonar og  Helgu Tryggvadóttur. gilli_karen_828713.jpg

 

 

 

Að lokum fermdist Pála Katrín, 9. april. Dóttir Jóhönnu Jónsdóttur og Pálma( Oddu leggur )

ferming_pala_828712.jpg

 


Amma

amma copy Átta ára danskur drengur sendi þessa skemmtilegu sögu um ömmur.

     Amma er kona sem að sjálf á ekki börn , svo að hún lætur sér þykja vænt um drengi og stúlkur sem að annað fólk á.  Ömmur hafa ekki neitt að gera, þær eru bara til.  Ef þær fara í göngutúr, ganga þær hægt framhjá fallegum blómum, kálormum, möðkum og gömlum húsum og þær segja aldrei "flýttu þér nú" eða " haltu áfram".

     Flestar ömmur eru feitar en þó ekki svo feitar að þær geti ekki reimað skóna manns.  Þær nota gleraugu, þær geta svarað öllum spurningum, svo sem af hverju hundar hata ketti og af hverju guð er ekki giftur.  Ef þær lesa fyrir okkur, hlaupa þær aldrei yfir neitt.  Ömmur eru þær einustu sem að hafa tíma fyrir aðra.

ALLIR ÆTTU AÐ EIGA ÖMMU!

Fullt af nýjum myndum

margar mynd copy

Binni í Gröf og Kata Sig

amma afi ung copy

Gaman væri ef þeir sem ættu gamlar myndir af þeim hjónum, Kötu og Binna gætu sent mér þær til birtingar hér á síðunni


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband